Vorhreinsun 8.-11. maí – gámar fyrir garðúrgang við grunnskólana

Fréttir

Að jafnaði fylla Hafnfirðingar sextán gáma af garðúrgangi við vorhreinsum ár hvert. Vorhreinsunardagarnir verða 8.-11. maí í ár. Bærinn kemst í sparifötin og verður tilbúinn fyrir frábært sumar, gesti sína og góðar stundir.

Nú tökum við til hendinni!

Dagana 8. – 11. maí 2025 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ. Þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám innan allra hverfa við hvern og einn grunnskóla.

Gámarnir verða við skólana frá morgni fimmtudagsins 8. maí til kl. 17 sunnudaginn 11. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu. Vakin er sérstök athygli á því að Sorpa tekur á móti garðúrgangi endurgjaldslaust.

Sjá opnunartíma á Sorpu Breiðhellu hér

Tökum virkan þátt og nýtum þessa þjónustu

Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir eða margnota poka við hreinsunina. Bent er á að ekki má setja garðaúrganginn í pokum í gáminn heldur skal losa úr pokunum beint í gáminn. Tilvalið er einnig, þar sem möguleikinn er fyrir hendi, að safna garðaúrgangi í safnhaug á góðum stað í garðinum og nýta til moltugerðar.

Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsuninni og er tilvalið í aðdraganda hreinsunardaga og á meðan á hreinsunardagar standa yfir að taka til hendinni í garðinum, snyrta runna og beð.

Bærinn hvetur sitt fólk einnig til að horfa einnig í kringum sig á næstu bletti, þegar það hreinsar garðana sína og plokki upp það sem þar á ekki heima.

Höldum gróðrinum í skefjum

Að gefnu tilefni er sérstök athygli vakin á því að lóðarhöfum er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Trjágróður getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Eins er lóðareigendum bent á að ákveðnar reglur gilda um byggingu á skjólvegg og grindverki innan lóðar sem mikilvægt er að kynna sér.

Hreinsum Hafnarfjörð!

Hreinsum, endurnýtum, flokkum og plokkum!

 

 

 

 

Ábendingagátt