Menningar- og heilsugöngur í Hafnarfirði 2026
Komdu út að ganga alla miðvikudaga í sumar Boðið verður upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga í sumar. Flestar…
3. júní kl. 20- Tónlistin og bæjarlífið
Jónatan Garðarsson leiðir fyrstu göngu sumarsins, um miðbæ Hafnarfjarðar. Við rifjum upp sterka tengingu tónlistar og bæjarlífsins. Fjallað verður um Friðrik Bjarnason, Sönghátíð í Hafnarborg, kirkjutónlist, Vinaminni, unglingaböll, Skiphól, Skútuna, Hjarta Hafnarfjarðar og margt fleira. Gengið verður frá Hafnarborg.
Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.
Komdu út að ganga alla miðvikudaga í sumar Boðið verður upp á bæjargöngur með leiðsögn alla miðvikudaga í sumar. Flestar…
3. júní kl. 20- Tónlistin og bæjarlífið Jónatan Garðarsson leiðir fyrstu göngu sumarsins, um miðbæ Hafnarfjarðar. Við rifjum upp sterka…
10. júní kl. 17 – Sögugerð og sprell Hugrún Margrét leiðir hjólastóla- og barnavagnavæna göngu frá Flensborg niður að Óla Run…
24. júní kl. 20 – Slóðir alþýðukonunnar Valgerður Sigurðardóttir leiðir göngu um söguslóðir alþýðukonunnar í Hafnarfirði. Rýnt verður í líf,…
1. júlí kl. 17 – Fjölskylduganga í Valaból Kolbrún Kristínardóttir leiðir fjölskylduvæna göngu að Valabóli í landi Helgafells. Valaból er…
8. júlí kl. 17 – Plöntutengsla- og söngganga fyrir fjölskyldur Búi Bjarmar og Hrefna Lind leiða lifandi og skemmtilega fjölskyldugöngu…
15. júlí kl. 20 – Hafnarsvæðið fyrr og nú Lúðvík Geirsson leiðir göngu um söguslóðir hafnarinnar, þar sem sagt verður…
22. júlí kl. 20 – Ástjörn Hildur Aðalsteinsdóttir leiðir göngu í kringum Ástjörn með viðkomu á Ásfjalli. Þægileg leið með…
29. júlí kl. 20 – Íþróttabærinn Hafnarfjörður Björn Pétursson leiðir göngu um miðbæ Hafnarfjarðar. Ljósi verður varpað á íþróttasögu bæjarins…
5. ágúst kl. 17 – Samtímavíkingar Jökull Tandri Ámundason leiðir létta göngu um bæinn. Fjallað verður um víkinga þjóðveldisaldar, heiðinn…