Leikskólar

Leikskólinn er fyrsta skólastigið. Þar er hlúð að börnum með skapandi og hvetjandi starfi.

Leikskólar

Leikskólarnir

Hafnarfjarðarbær rekur 17 leikskóla og auk þeirra eru tveir sjálfstætt reknir leikskólar í bænum.

Leikskólar í Hafnarfirði eru ekki hverfaskiptir þar sem leikskólarnir byggja á mismunandi uppeldisstefnum. Mikilvægt er að foreldrar velji þá skólastefnu sem þeim finnst henta best út frá sínu barni og uppeldisviðmiðum.