Fyrsti fundur bæjarstjórnarinnar eftir kosningar frá

Fréttir

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fór fram í gær, miðvikudaginn 3. júní. Nýtt kjörtímabil verður leitt af Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Samfylkingu.

Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir kosningar

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fór fram í gær, miðvikudaginn 3. júní. Þar tóku nýir bæjarfulltrúar sæti og kosið var í ráð og nefndir bæjarins fyrir komandi kjörtímabil.

Þessi fyrsti fundur markaði upphaf nýs kjörtímabils í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru 16. maí síðastliðinn.

Nýr meirihluti

Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar tekur við stjórn bæjarins á kjörtímabilinu 2026–2030. Árni Stefán Guðjónsson hefur verið kjörin forseti bæjarstjórnar og Orri Björnsson verður áfram formaður bæjarráðs.

Sveitarstjórnarkosningarnar leiddu til umtalsverðra breytinga á skipan bæjarstjórnar. Alls tóku sex nýir bæjarfulltrúar sæti í bæjarstjórn eftir kosningarnar, á sama tíma og nokkrir reynslumiklir fulltrúar létu af störfum eftir farsælt starf í þágu bæjarbúa. Sjá niðurstöðuna hér.

Guðmundur Árni kveður

Guðmundur Árni Stefánssyni Samfylkingu er einn þeirra sem kvaddi bæjarstjórnina. Guðmundur Árni á sér langa sögu í bæjarmálum Hafnarfjarðar. Hann tók fyrst sæti í bæjarstjórn árið 1982 og gegndi síðar embætti bæjarstjóra á árunum 1986 til 1993. Hann sneri aftur í bæjarstjórn árið 2022. Hann hefur því, með hléum vegna starfa á Alþingi, í ríkisstjórn og í utanríkisþjónustunni, lagt sitt af mörkum til bæjarmála í meira en fjóra áratugi. Við færum honum kærar þakkir fyrir þetta ríka framlag til sveitarfélagsins og íbúa þess.

Nýr bæjarstjóri

Þórður Þórarinsson var á fundinum ráðinn bæjarstjóri af meirihlutanum. Hann er fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Fyrir það var hann framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins.

Valdimar Víðisson hefur nú lokið störfum sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar eftir rúmt ár í þessu leiðtogasæti. Hafnarfjarðarbær þakkar Valdimari einnig fyrir samstarfið en hann verður áfram bæjarfulltrúi okkar Hafnfirðinga.

Tveir bæjarfulltrúar héldu jómfrúarræðu sína í gær. Viktor Pétur Finnsson og Einar Geir Þorsteinsson.

Kosið í ráð og nefndir

Á fundinum var kosið í ráð, nefndir og stjórnir bæjarins fyrir nýtt kjörtímabil. Lesa má niðurstöðuna hér. (https://hafnarfjordur.is/kosid-i-rad-og-nefndir-a-baejarstjornarfundinum/)

Fram undan er nýtt kjörtímabil. Hér má lesa áherslur nýs meirihluta til næstu fjögurra ára.

Ábendingagátt