Leggjum rétt – Öryggi vegfarenda aukið

Fréttir

Hafnarfjarðarbær hvetur bæjarbúa til að leggja ökutækjum sínum rétt. Engar sérreglur gilda hér í bæ. Farið er að umferðarlögum. Fyrst og fremst er fylgst með bílastæðum og götum á iðnaðarsvæðum, í miðbænum og í eldri hverfum þar sem götur eru oft þröngar.

Þekkjum lögin – og leggjum rétt!

Bílastæðasjóður Hafnarfjarðarbæjar er kominn á fullt skrið. Stöðuvörður fer um bæinn og tryggir að ökutækjum sé rétt lagt. Þetta er gert til að auka umferðaröryggi hér í Hafnarfirði.

Bílastæðasjóður Hafnarfjarðarbæjar hefur það hlutverk að framfylgja því að ökutækjum sé lagt í samræmi við umferðarlög nr. 77/2019. Höfum í huga að engar sérstakar reglur um hvar eða hvernig leggja má bifreiðum eru í gildi í Hafnarfirði umfram þær almennu reglur sem gilda samkvæmt lögum.

Megináhersla Bílastæðasjóðs er að fylgjast með bílastæðum og götum á iðnaðarsvæðum og í miðbænum. Einnig í eldri hverfum þar sem götur eru oft þröngar og rangt lagðir bílar geta skapað aukna hættu, meðal annars fyrir gangandi vegfarendur, akandi umferð og aðkomu neyðarbíla.

Stöðuvörður bregst einnig við ábendingum frá íbúum þegar tilkynnt er um ökutæki sem kunna að vera ólöglega lögð.

  • Frá apríl og fram í miðjan júní voru gefnar út tæplega 600 aðvaranir vegna ólöglegra stöðubrota.
  • Frá því að innheimta vegna stöðubrota hófst hafa að meðaltali verið gefnar út um 10 álagningar vegna stöðubrots á dag.

Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa til að taka höndum saman um að lækka þessa tölu með því að gæta að því hvar og hvernig ökutækjum er lagt. Beita okkur þeim aga sem löggjafinn setur.

  • Vert er að nefna að margir virðast ekki átta sig á að skv. umferðalögum er er bannað að leggja bifreið á móti akstursstefnu götu. Skerpum á þessu og leggjum rétt. Löglega lagður bíll fær ekki á sig álagningu vegna stöðubrots.

Ef einhver telur sig hafa fengið álagningu vegna stöðubrots þrátt fyrir að ökutækinu hafi verið lagt löglega er hægt að senda inn andmæli í gegnum vef Bílastæðasjóðs. Já, ekki hika við að hafa samband. Netfangið er: bilastaedasjodur.hafnarfjordur.is

Þekkjum lögin og förum eftir þeim. Eyðum þessum stöðubrotum.

Ábendingagátt