Hittu hamingjuna í Hafnarfirði í september

Fréttir

Söngvarinn Valdimar kemur fram í Hellisgerði á Hamingjudögunum okkar hér í Hafnarfirði í september, rétt eins og Guðrún okkar Árný. Já, það verður stuð þegar við syngjum í Hellisgerði, skrafað þegar við prjónum á Ægi 220 og svitnað þegar við hlaupum okkar 10 km með Krissa. Hamingjudagarnir okkar 2026 eru á næsta leiti.

Hamingjudagar í Hafnarfirði 2026

Söngvarinn Valdimar mætir í Hellisgerði og heldur þar tónleika föstudagskvöldið 25. september. Tónleikarnir verða einn af hápunktum Hamingjudaga 2026, sem eru nú að hefjast í Hafnarfirði – Já, þeir standa allan septembermánuð.

Hamingjunni verður dreift víða um bæinn með hlaupum, útivist, söng, tónlist, jóga, sjóbaði, prjónakaffi og fróðlegri göngu. Allir ættu því að finna sína eigin leið að hamingjunni.

Dagskráin hefst þriðjudaginn 1. september þegar Krissi býður upp á tíu kílómetra samfylgd um bæinn í HamingjuHlaupi. Tveimur dögum síðar leiðir Rúnar Pálsson okkur um HamingjuHelgafell og föstudagskvöldið 4. september verður sannkallað HamingjuSöngpartý með Guðrúnu Árnýju í Hellisgerði. Eðalskemmtun sem enginn ætti að missa af.

Þeir sem vilja hægja á sér og finna hamingjuna í kyrrðinni geta tekið þátt í HamingjuJógaNidra í Hellisgerði 9., 12. eða 26. september. Þriðjudaginn 15. september verður svo HamingjuSjóbað með Glaðari Þú.

Á HamingjuPrjónakaffi á Ægi 220 sunnudaginn 20. september verða prjónar, spjall og notaleg samvera í aðalhlutverki. Jónatan Garðarsson leiðir síðan HamingjuGöngu miðvikudagskvöldið 23. september.

Dagskrá

Hamingjan leynist víða – en í september verður sérstaklega auðvelt að finna hana í Hafnarfirði.

Ábendingagátt