Yfir 100 umsóknir um húsin 20 í Jólaþorpinu

Fréttir Jólabærinn

Yfir eitt hundrað umsóknir bárust um að fá jólahús í Jólaþorpinu okkar hér í Hafnarfirði. Aldrei hafa fleiri sóst eftir því að fá að taka þátt. 

Metáhugi á þátttöku í Jólaþorpi Hafnarfjarðar 

Aldrei hafa fleiri sóst eftir því að fá jólahús í Jólaþorpi Hafnarfjarðar og í ár. Yfir eitt hundrað umsóknir bárust. Unnið er að yfirferð umsókna og stefnt að því að svara umsækjendum um miðjan október. Jólaþorpið opnar á Thorsplani föstudaginn 13. nóvember. 

Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri Jólaþorpsins, segir áhugann afar ánægjulegan og sýna hvað Jólaþorpið sé orðið sterkt í vitund Hafnfirðinga og gesta. 

Jólaþorpið þróast áfram

„Þetta eru frambærileg fyrirtæki og einstaklingar sem vilja vera með okkur í ár. Margir hafa verið með okkur áður en einnig eru nýir aðilar sem vilja spreyta sig. Það er mikilvægt því þannig þróum við þorpið áfram,“ segir hún. „Þannig náum við líka meiri fjölbreytni milli helga. Það verður því enn skemmtilegra að koma í þorpið um hverja helgi, hitta vini og kunningja og njóta aðventunnar saman.“ 

Eins og greint var frá á vef Hafnarfjarðarbæjar í september verða um tuttugu söluhús í þorpinu. Við val á söluaðilum er lögð áhersla á gæði, fjölbreytni og skýra tengingu við jólahefðir landsmanna. Horft er til heildarupplifunar gesta við samsetningu söluaðila og vöruúrvals.  

Saman í Jólaþorpinu

Skreyttu jólahúsin á Thorsplani hafa fest sig í sessi sem vettvangur fyrir handverk, hönnun, gjafavöru og sælkerakrásir. Heimsókn í Jólaþorpið er jafnframt kærkomið tækifæri til að njóta samveru og jólastemningar í hjarta Hafnarfjarðar. 

  • Jólaþorpið verður opið á föstudögum kl. 17–20, laugardögum kl. 13–20 og sunnudögum kl. 13–18. Einnig verður opið á Þorláksmessu. 

Já, jólin koma!  

Ábendingagátt