Breytt Vatnshlíð og vöxtur – Nýtt aðalskipulag samþykkt
Nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025–2040 gerir ráð fyrir áframhaldandi vexti bæjarins. Einnig umfangsmikilli uppbyggingu atvinnusvæða, stærri miðbæ, nýrri samgöngumiðstöð og aukinni áherslu á græn svæði, náttúruvernd og náttúruvá. Mikilvægast er þó að lífsgæði íbúa bæjarins verði höfð að leiðarljósi í allri uppbyggingu.
Aðalskipulagið til 2040 samþykkt
Gert er ráð fyrir að Hafnfirðingum fjölgi um 6.500 til 14.000 til ársins 2040 og áætlað að þörf fyrir nýjar íbúðir verði 3.300 til 6.400. Tillaga að nýju aðalskipulagi Hafnarfjarðar var samþykkt í bæjarstjórn í gær, 7. október. Aðalskipulagið tekur til tímabilsins 2025–2040 og hefur verið unnið í víðtæku samráði undanfarin ár.
„Þetta er metnaðarfullt skipulag, sem gefur okkur hér í Hafnarfirði tækifæri til að stækka með auknum mannfjölda og styður við framtíðarsýn um öflugt atvinnulíf og aðlaðandi miðbæ,“ segir Karólína Helga Símonardóttir, formaður skipulags- og byggingarráðs.
„Ánægðust er ég með þátttöku Hafnfirðinga í mótun þess. Það hve margir tóku þátt og sýndu málinu áhuga sýnir hvað bæjarbragurinn hér er sterkur og að íbúar vilja hafa áhrif á umhverfi sitt og að skoðun þeirra skiptir máli.“
Aðalskipulagið fer nú til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til yfirferðar.
Svigrúm fyrir nærri 9.000 nýjar íbúðir
Gert er ráð fyrir rými fyrir vel ríflega 8.000 íbúðum í aðalskipulaginu, þar af um 7.600 á nýjum uppbyggingarreitum og um 1.000 á þéttingarsvæðum. Áhersla er lögð á fjölbreytt búsetuform, þéttingu byggðar og nýtingu nýs lands, auk umbreytingar eldri svæða. Samhliða íbúðauppbyggingu er horft til þess að fjölga störfum og stækka atvinnu- og hafnarsvæðið við Straumsvík.
Íbúðabyggð og íbúðir Um 7.600 á nýjum reitum og um 1.000 á þéttingareitum. Þörfin til 2040 metin á milli 3.300 til 6.400 íbúðir.
Stefán Gunnar Thors, sviðsstjóri umhverfis og skipulags hjá VSÓ ráðgjöf fór yfir skipulagið með bæjarfulltrúum fyrir bæjarstjórnarfundinn, en VSÓ, Landslag, Tendra Arkitektur, Urbana, VBS verkfræðistofa sem og bæði Skipulags- og byggingarráð og umhverfis og skipulagssvið unnu skipulagið.
„Það er mikilvægt að nýta landið innan vaxtarmarka bæjarins. Það kallar á stórar ákvarðanir um umbreytingar innan þeirra,“ sagði Stefán við fulltrúana.
Miðbærinn efldur og tengdur betur við höfnina
Miðbær Hafnarfjarðar fær mikilvægt hlutverk í framtíðarsýninni. Þar er horft til sögulegs kjarna bæjarins og sérstöðu timburhúsanna í hrauninu en um leið til nýrrar uppbyggingar, aukinnar þjónustu og öflugra mannlífs.
Uppbygging Suðurhafnar og Flensborgarhafnar á að opna bæinn betur að sjónum með torgum, bryggjum og menningarstarfsemi.
„Hafnarfjörður er fallegasta sjávarþorpið á höfuðborgarsvæðinu, og við ætlum að vera það áfram. Með þeirri uppbyggingu á Flensborgarhafnar svæðinu þá verði jafnvægi, milli þess að halda í bæjarbraginn með fallegt bæjarstæði og örtvaxandi bæ,“ segir Karólína Helga.
Þá er gert ráð fyrir Borgarlínustöðvum í miðbænum og lögð áhersla á tengsl við Hellisgerði, Lækinn, Hamarinn og strandlengjuna.
Almenningssamgöngur Hér má sjá tengingar borgarlínu stofnleiða, almennra leiða og almennningssamgangna frá Keflavík.
Verulegt svigrúm er til uppbyggingar atvinnulífs í aðalskipulaginu. Viðbótarbyggingarheimildir á athafna- og iðnaðarsvæðum nema samtals um 990 þúsund fermetrum; 440 þúsund fermetrum á athafnasvæðum og 550 þúsund fermetrum á iðnaðarsvæðum.
Athafna- og iðnaðarsvæði Alls eru 440.000 fermetra viðbótarheimildir á athafnasvæðum og 550.000 á iðnaðarsvæðum.
Dregið úr uppbyggingu við Vatnshlíð
Samvinna hefur verið rík við mótun aðalskipulagsins og hrósar Stefán Hafnfirðingum fyrir að taka þátt í vinnunni. Mjög vel hafi verið mætt á fundi um skipulagið og breytingar gerðar vegna athugasemda.
Ein stærsta breytingin snýr að Vatnshlíð. Þar var upphaflega gert ráð fyrir 1.400 íbúðum á 64,6 hektara svæði og byggingum allt að fimm hæðum. Svæðið hefur hins vegar verið minnkað um 39%, niður í 39,1 hektara, og íbúðum fækkað um 21% í tillögunni nú, í 1.100. Svæðinu er jafnframt skipt í tvo reiti.
| Viðmið | Var auglýst | Til samþykktar |
|---|---|---|
| Flatarmál | 64,6 ha | 39,1 ha |
| Íbúðir | 1.400 | 1.100 |
| Reitir | 1 | 2 |
| Hámarkshæð | 5 hæðir | 4 hæðir / 3 nyrst og 2 syðst |
Á Bláberjahrygg er gert ráð fyrir 650 íbúðum, mest fjögurra hæða, en í Vatnshlíð 450 íbúðum þar sem hús verða þrjár hæðir nyrst og tvær syðst. Auknar kröfur verða gerðar vegna sprungna, gróðurs og aðlögunar að landslagi. Byggð við Vatnshlíð hefur því verið lækkuð og fyrirhuguðum íbúðum fækkað eftir athugasemdir íbúa Hafnarfjarðarbæjar við byggingaráformin þar.
„Búið er að greina sýnileika og hvaðan byggðin sést frá vatninu,“ sagði Stefán. Niðurstaðan hafi verið að fækka íbúðum, draga úr stærð svæðisins og setja skýrari skilmála um hæðir fjölbýlishúsa. Hærri hæðir fjær vatninu og lægri nær
„Að okkar mati er hægt að byggja svæðið upp án þess að eyðileggja upplifunina af Hvaleyrarvatni,“ sagði Stefán.
Fleiri breytingar hafa verið gerðar eftir umsagnir og athugasemdir.
- Opið svæði milli byggðar og Hvaleyrarvatns verður stækkað og aukin áhersla lögð á umsjón og eftirlit með þessu vinsæla útivistarsvæði.
- Við Óla Run tún færist fyrirhuguð byggð að Brekkuhvammi og ákvæði eiga að tryggja aðgengi að garðinum og tengingu við Jófríðarstaðatún.
Ný samgöngumiðstöð og fjölbreyttari ferðamátar
Samgöngur eru stór þáttur í aðalskipulaginu. Markmiðið er meðal annars að styðja við fjölbreytta ferðamáta, bæta umferðaröryggi og draga úr neikvæðum áhrifum bílaumferðar. Stefán horfir til umferðarinnar.
„Bíllinn hefur verið nálægt okkur Hafnfirðingum og með auknum vexti og fleiri íbúum þurfum að breyta ferðavenjum til að komast leiðar okkar en um leið að tryggja umferðaröryggi,“ segir hann.
Stefnt er að því að hlutdeild almenningssamgangna verði að minnsta kosti 12% allra ferða og að ganga og hjólreiðar verði að minnsta kosti 30%. Þá er það markmið að umferð á Reykjanesbraut verði í frjálsu flæði í gegnum Hafnarfjörð.
Miðbærinn og Borgarlínan Miðbær hafnarfjarðar um 20 þúsund fermetrar.
„Það er algjörlega ljóst að það þarf fjölbreyttar lausnir í samgöngumálum,“ sagði Stefán. Hafnarfjörður leggi til samgöngumiðstöð við Tjarnarvelli, þar sem tekið væri á móti háhraðasamgöngum við flugvöllinn og tengt saman við Borgarlínu og Strætó.
Náttúruvá fær aukið vægi
Einnig er brugðist við breyttum forsendum vegna náttúruvár í nýja aðalskipulaginu. Nýjar upplýsingar úr langtímahættumati 2026 um hraunvá gagnvart byggð og atvinnusvæðum eru teknar inn og áhættugreiningar og varnaraðgerðir fá skýrari sess.
Náttúruvá Hér má sjá hraun fyrri gosskeiða. Gulu línurnar sýna mögulega staðsetningu varnargarða.
Jafnframt verða skilmálar um náttúru, vötn og vatnshlot ítarlegri og auknar kröfur gerðar um mat á verndargildi Krýsuvíkurfólkvangs, gróðurfari og vatnshlotum áður en orkuvinnsla er útfærð.
Já, tækifærin eru mörg í tillögunni að nýju aðalskipulagi Hafnarfjarðar.