Hver er Arngunnur Ýr? Baksviðs með bæjarlistamanninum 2025
Arngunnur Ýr hefur búið hér í Hafnarfirði í nærri aldarfjórðung. En þó aðeins með annan fótinn. Hún er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2025, en hver er hún? Lítum baksviðs.
Baksviðs með bæjarlistarmanninum 2025
Hver er Arngunnur Ýr? „Guð minn góður. Það er nú það, ég veit ekki hvort ég veit það alveg sjálf,“ sagði Arngunnur Ýr Gylfadóttir léttum tóni við gerð myndbands degi fyrir viðurkenningarnhátíðina þar sem hún var útnefnd bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2025.
Arngunnur Ýr hefur búið hér í Hafnarfirði í nærri aldarfjórðung. En þó aðeins með annan fótinn. Hún býr einnig í Kaliforníu og byggir hús á Havaí með manni sínum Larry Andrews, sem sundglaðir hitta gjarnan í Suðurbæjarlaug. Þau eiga tvö fullorðin börn. Annað ytra. Hitt hér heima.
„Ég get þó sagt að ég hef þurft á myndlist að halda síðan ég var eins árs, segja foreldrar mínir. Það er satt. Ég var alltaf að teikna. Sterkasti krafturinn í mér er þessi þörf fyrir að tjá það sem ég upplifi. Þá er það yfirleitt á blaði, striga eða viðarplötu. Þannig hefur það verið alla mína tíð,“ segir hún en dregur um leið fram að hún sé einnig flautuleikari.
Tónlistin á sinn sess
„Ég kláraði tónlistarskóla og hef spilað með alls konar hljómsveitum og kammergrúbbum. Það er líka mikilvægur partur af lífi mínu,“ segir hún. „Ég get þó sagt fyrir víst að listin er mikilvæg fyrir mig og ég nota hana til að tjá það sem ég upplifa og mannlegt eðli.“
Arngunnur Ýr er elst fimm systkina. Foreldrar hennar Gylfi Baldursson heyrnarfræðingur og Rúrí Jónsdóttir taugasálfræðingur. Þau fóru víða. „Þó svo að pabbi hafi verið í hjólastól ferðuðumst við um allt landið,“ lýsir hún. „Við fórum í laxveiði og fórum um allt land.“
Sjálf varð hún síðar leiðsögumaður meðfram listinni. „Þá lærir maður svo mikið um landið sitt. Um landbúnað, jarðfræðina og er alltaf að bæta við kunnáttu mína þar,“ segir hún og lýsir því hvernig landslag varð hennar tjáning.
„Þessi þekking hafði áhrif á hvernig ég mála myndirnar mínar. Ég hef unnið út frá náttúrunni eins og hún er. Það eru 100 mismunandi lög í málverkunum mínum en svo ræðst ég á þær og eyðilegg þær,“ segir hún og lýsir því hvernig hún vinni myndirnar, setji stundum þykkt Byko-límband yfir mynd sem hún hafi verið marga mánuði að mála. Stundum hafi stórséð á verkinu.
„Áhættan gerir þetta svo spennandi og færir verkið á annað stig,“ segir hún. „En þannig er lífið. Það er ekki bara fallegt. Við erum svo djúp. Við missum, það er sorg og erfiðleikar. Mér finnst ég því að ég þurfi að hafa það með því fallega.“
Ísland togar alltaf í hana
Ferill sem þróast
Arngunnur lýsir því hvernig áherslur hennar hafi breyst. Hún hafi málað himnamyndir í tíu ár. Keimlíkar en einstakar á sinn hátt. „Síðar mála ég fjöll, þjóðgarða, sameina þjóðgarða ólíkra landa.“ Fjölskyldan bjó meðal annars í Kanada um tíma, Nova Scotia. Þaðan flutti Arngunnur Ýr aftur heim og fór ein með skipinu Gullfossi. Þar bjó einmitt yngri systir hennar Gunnhildur Sif sem lést í bílslysi árið 1987.
„Það eru alltaf tengsl milli tímabila og hvað ég hef málað. Það snýst aðallega um þrennt. Þá miklu sorg að missa systur mína og allt breytist á einu augnabliki þegar hún deyr í bílslysi. Hvað við erum pínkulítil gagnvart þessum risastóru öflum í kringum okkur og að við sættum okkur ekki við það. Og að náttúran stjórnar okkur en við ekki henni.“
Flaug heim frá Havaí
Arngunnur Ýr flaug hingað heim frá Havaí til að vera viðstödd viðurkenningarhátíðina. „Ég er svo sannarlega stolt. Virkilega heiðruð, glöð og þakklát. Ég vil gefa af mér og finnst frábært að fá til baka,“ segir hún og rígheldur í frábært hús sitt í jaðri Hafnarfjarðar, Sléttuhlíð.
„Ég er ekkert að fara og mun aldrei selja húsið mitt hér enda kann ég svo vel við bæjarbraginn,“ segir hún og brosir.