Starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar sjá um hreinsun og þvott á götum, bílastæðum við götur og skóla, og á gönguleiðum. Vorhreinsun 2016 er hafin og fer hún fram í öllum hverfum. Miðbæjarsvæði Hafnarfjarðar hefur þegar verið sópað einu sinni og verður sópað aftur fyrir Sumardaginn fyrsta. Þvottur og sópun á húsagötum, aðalgötum og göngustígum er hafin og mun […]
Flokkur: Fréttir
Ársreikningur 2015 til umræðu
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2015 verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í dag. Hækkun launa vegna starfsmats og nýrra kjarasamninga ásamt lífeyrisskuldbindingum vega þungt og skýra að mestu frávik frá fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir 2015. Fyrsti ársfjórðungur 2016 sýnir að úttekt og rekstrarrýni síðla árs 2015 mun skila jákvæðum rekstrarniðurstöðum á yfirstandandi rekstrarári. […]
Vertu með á umhverfisvaktinni
Umhverfisvaktin snýr aftur. Verkefnið snýr að umhirðu og fegrun bæjarins og er markmiðið sem fyrr að efla umhverfisvitund íbúa, fegurri bær og aukin hreinsun. Félögum og hópum í Hafnarfirði stendur til boða að vakta umhverfið, þ.e. taka að sér að sjá um hreinsun á skilgreindu landsvæði, gegn fjárstyrk til starfseminnar. Aðeins tólf hópar komast að […]
Til hamingju Haukar!
Afmæliskveðja frá Hafnarfjarðarbæ Það er hverju samfélagi dýrmætt og mikilvægt að hafa innan sinna raða öflug íþróttafélög og einstaklinga sem með sjálfboðastarfi sínu hafa byggt og byggja enn upp faglegt og flott starf gagngert til að virkja einstaklinga á öllum aldri til hreyfingar og heilsubótar. Mikilvægi íþrótta og áhrif þeirra á samfélagið eru margvísleg. Íþróttir […]
Bæjarstjórnarfundur 13.apríl
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 13.apríl nk. og hefst fundurinn kl. 16:00 í Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að nálgast dagskrá bæjarstjórnarfundarins. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu. Útsending hefst kl 16:00.
Í bæjarfréttum er þetta helst
Sumarið er handan við hornið Biðin eftir sumrinu, aðeins meiri hlýju og birtu styttist. Daginn er tekið að lengja og hver dagur nú í mars hefur fært okkur nær sumri í ansi mörgu tilliti. Íbúar eru farnir að draga fram hjólin og mikið líf farið að færast yfir bæinn í heild sinni. Á góðum dögum […]
Hvatningarverðlaunin 2016
Hvatningarverðlaun Foreldraráðs Hafnarfjarðar voru afhent síðastliðinn þriðjudag. Athöfnin fór fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði fyrir fullu húsi. Frestur til að senda inn tilnefningar rann út mánudaginn 14. mars og bárust í heild 12 tilnefningar varðandi 11 einstaklinga, sem þótt hafa skarað framúr í vinnu sinni í þágu barna og ungmenna í Hafnarfirði. Val til verðlauna […]
Flóttafjölskyldurnar okkar
Hópur af sýrlensku flóttafólki lenti á Keflavíkurflugvelli síðdegis dag eftir langt ferðalag. Flóttafjölskyldurnar eru fjórar og setjast þrjár þeirra að í Hafnarfirði og ein í Kópavogi. Það var þakklátur og þreyttur hópur sem mætti til stuttrar móttöku í Hafnarborg í Hafnarfirði áður en haldið var á ný heimili í nýju landi. Í hópnum sem kom […]
Sumarstörf í boði
Hafnarfjarðarbær leitar eftir duglegum og öflugum einstaklingum til starfa í sumar. Til umsóknar eru störf flokkstjóra, leiðbeinenda og aðstoðarleiðbeinenda á íþrótta- og leikjanámskeiðum og í skólagörðum, störf í umhverfis- og garðyrkjuflokkum. Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi eigi lögheimili í Hafnarfirði og eru laun samkvæmt kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar og viðkomandi stéttarfélags. Lágmarksaldur umsækjenda í eftirfarandi störf er […]
SSH 40 ára í dag
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SSH, eru 40 ára í dag. Samtökin voru stofnuð í Hlégarði, Mosfellshreppi, 4. apríl 1976. Stofnaðilar voru sveitarfélögin Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Seltjarnarnes, Mosfellshreppur, Bessastaðahreppur og Kjalarneshreppur. Megintilgangur með stofnun SSH var að skapa vettvang fyrir samstarf um skipulag á höfuðborgarsvæðinu og strax á stofnfundi var rætt um stofnun þróunarstofu, (sem varð […]