Category: Fréttir

Stofnframlag til Brynju til kaupa á 10 íbúðum

Brynja og Hafnarfjarðarbær undirrita samning um íbúðir í Hafnarfirði   Brynja, hússjóður Öryrkjabandalags Íslands, og Hafnarfjarðarbær hafa undirritað samning um stofnframlag til kaupa á íbúðum í Hafnarfirði. Samningurinn gildir um kaup á allt að tíu almennum íbúðum. Stofnvirði kaupáætlunar Brynju nemur alls 562 milljónum króna og nemur stofnframlag Hafnarfjarðarbæjar ríflega 67 milljónum króna. Rósa Guðbjartsdóttir, […]

Vilja innleiða geðrækt í nám og líf allra barna

Áskorun til stjórnvalda og allra þeirra sem koma að uppeldi og menntun barna Á ráðstefnunni Geðrækt er málið! sem fram fór í vikunni, undirrituðu bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar Rósa Guðbjartsdóttir og Arna Pálsdóttir starfandi formaður stjórnar Píeta samtakanna, áskorun til stjórnvalda og þeirra sem koma að uppeldi og menntun barna, að setja forvarnarstarf í þágu barna á […]

Sjá um rekstur skátamiðstöðvar og tjaldsvæðis

Hraunbúar sjá um rekstur skátamiðstöðvar og tjaldsvæði  Hafnarfjarðarbær og Skátafélagið Hraunbúar skrifuðu í vikunni undir samning um umsjón og rekstur á skátamiðstöðinni Hraunbyrgi og tjaldsvæði á Víðistaðatúni auk skátaskála við Kleifarvatn. Hraunbúar sjá um rekstur á Hraunbyrgi að Hjallabraut 51 og tjaldsvæði á Víðistaðatúni þar með talið skátaheimili, áhaldahúsi, útisvæði, tjaldsvæði, þjónustuhúsi auk grillaðstöðu á […]

Þörf fyrir áfangastaðastofu þykir augljós

Þörfin fyrir áfangastaðastofu á höfuðborgarsvæðinu er augljós Ferðamálaþing Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) fór fram miðvikudaginn 27. apríl á Hilton Nordica. Á þinginu var fjallað um aðdragandann að stofnun áfangastaðastofu fyrir höfuðborgarsvæðið og tóku aðilar frá ferðaþjónustufyrirtækjum, sveitarfélögum og hinu opinbera þátt.  Höfuðborgarsvæðið þarf að vera samkeppnishæft  Gunnar Einarsson, formaður stjórnar SSH, setti þingið og […]

Viltu vera með söluhús eða atriði á 17. júní?

Viltu vera með söluhús á 17. júní? Hafnarfjarðarbær og þjóðhátíðarnefnd óska eftir áhugasömum söluaðilum til þess að leigja söluhús á 17. júní. Sérstaklega er leitast eftir aðilum sem hyggjast selja mat og drykk. Söluleyfið gildir föstudaginn 17. júní þar sem hátíðarhöldin fara fram í Hafnarfirði. Með söluleyfi fylgir sölukofi og er dregið um staðsetningu söluaðila. […]

Sveitarstjórnarkosningar 2022

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 14. maí 2022 Kjörfundur í Hafnarfirði vegna sveitarstjórnarkosninganna 14. maí 2022 stendur yfir frá kl. 9 – 22.  Kjörstaðir í Hafnarfirði eru tveir,  Lækjarskóli að Sólvangsvegi 4 og Ásvellir íþróttamiðstöð. Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað. Kjörstjórn Yfirkjörstjórn í Hafnarfirði skipa:  Þórdís Bjarnadóttir, […]

HönnunarMars í Hafnarfirði 2022

Sérstök athygli vakin á gróskumikilli hönnun í Hafnarfirði  Lögð verður sérstök áhersla á hönnun í söfnum og menningarhúsum Hafnarfjarðar næstu dagana. Hafnarborg, Bókasafn Hafnarfjarðar og Bæjarbíó eru í hópi þeirra rúmlega 100 sýninga, 400 þátttakenda og 250 viðburða sem taka þátt í Hönnunarmars 2022, stærstu hönnunarhátíð landsins. Með þátttökunni vill Hafnarfjarðarbær vekja sérstaka athygli á […]

Vinnuskóli Hafnarfjarðar – opið fyrir umsóknir 14 – 17 ára

Sumarið 2022 fá 14 – 17 ára unglingar (fæddir árin 2005 – 2008) vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Vinnuskólinn sinnir fyrst og fremst umhverfismálum og á þannig stóran þátt í því að hreinsa bæinn og hirða gróður, götur og göngustíga yfir sumartímann. Starfsfólk Vinnuskólans sinnir því mikilvægu hlutverki í því að skapa vænta ásýnd bæjarins, að […]

Hjartasteinn í minningu Guðrúnar Helgadóttur

Fjölskylda Guðrúnar afhjúpar minnisvarða í hjarta Hafnarfjarðar Hjartasteinn í minningu Guðrúnar Helgadóttur var í dag lagður í hjarta Hafnarfjarðar fyrir framan Bæjarbíó. Hugmynd að fallegum virðingarvotti og minnisvarða kviknaði fyrst í samtali við höfundinn sjálfan í kjölfar þess að hún var heiðruð í Hafnarfirði fyrir ritverk hennar og framlag til íslenskrar menningar í tengslum við […]

Hraunvallaskóli kominn í úrslit í Skólahreysti

Hraunvallaskóli tryggði sér farseðil í úrslit Skólahreysti í gær eftir harða keppni Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda.  Nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar hafa tekið virkan þáttí Skólahreysti og það með góðum árangri. Eftir fimm riðla af Skólahreysti vorið 2022 […]