Category: Fréttir

Einstök samheldni og gestrisni íbúa

  Fyrrum aðal verslunargata bæjarins Austurgata var á árum áður aðal verslunargata Hafnarfjarðar. Gatan er dæmigerð fyrir Hafnarfjörð þar sem byggðin, hraunið og fólkið mynda þétta heild. Við götuna standa 15 hús sem eru eldri en gatan sjálf og lögð hefur verið áhersla á að viðhalda götumynd frá upphafi 20. aldar. Samheldni íbúa við Austurgötu […]

Metnaðarfullur handverksbakari

  Gulli Arnar bakarameistari hefur rekið samnefnt handverksbakarí við Flatahraun 31 í tæp tvö ár. Gulli er afar kraftmikill og metnaðarfullur ungur maður sem kom með ferskan blæ inn í flóru bakaría í Hafnarfirði, þar á meðal margar nýjungar sem ekki höfðu verið fáanlegar áður í bænum. Hjá handverksbakaríinu er passað vel upp á að […]

Styrkir til menningarstarfsemi

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í Hafnarfirði. Umsóknum skal skila inn með rafrænum hætti. Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2022. Tvisvar á ári auglýsir menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar eftir umsóknum um styrki til menningarstarfsemi og eflingar á hafnfirsku menningarlífi. […]

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2022

Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 20. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2022. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til hliðsjónar við val á bæjarlistamanni. Friðrik Dór Jónsson var bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2021.  Einungis listamenn með fasta búsetu í Hafnarfirði koma til greina við úthlutun og er miðað […]

Jólatré ekki sótt heim eftir jólahátíðina

Tilkynning vegna jólatrjáa Af gefnu tilefni vill Hafnarfjarðarbær vekja athygli á því að bærinn hirðir ekki jólatré frá íbúum eftir jólahátíðina. Ákvörðun þess efnis var tekin þann 21. september 2016 og hafa jólatré ekki verið sótt heim síðan þá.  Bent er á að íþróttafélög og félagasamtök eru í dag farin að bjóða upp á þá […]

Hefð að ganga á Helgafell á fyrsta degi nýs árs

Tugir þúsunda ganga á eða umhverfis Helgafell árlega og er fjallið verulega vinsælt hjá göngu-, hlaupa- og einnig fjallahjólafólki. Rúnar Pálsson fer nær daglega á Helgafell og hefur í næstum aldarfjórðung séð um gestabókina á toppnum þar. Það er orðin hefð hjá þeim hjónum, börnum þeirra og barnabörnum að ganga saman á Helgafellið á nýársdag […]

Náttúran í Hafnarfirði býður til veislu allan ársins hring

Ró í óróa með Saga Story House Í annríki dagsins er öllum mikilvægt að kunna leiðir út úr þeim óróa sem álag og streita geta valdið. Í landi Hafnarfjarðar er fjöldi útivistarsvæða þar sem náttúran býður til veislu allan ársins hring. Guðbjörg og Ingibjörg hjá fyrirtækinu Saga – Story House hafa farið í yfir 360 leiddar […]

Skipulagsdagur í tónlistarskóla og leik- og grunnskólum 3. janúar

Miðað við hraða útbreiðslu Covid -19 og fjölgun smita í samfélaginu er viðbúið að röskun geti orðið á starfsemi leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og tónlistarskóla á komandi dögum. Gera má ráð fyrir að loka þurfi deildum í leikskólum og fella niður kennslu í einstökum árgöngum eða stærri hópum í grunnskólum, um skemmri eða lengri tíma. […]

Vinnurými með besta útsýni bæjarins

  Betri Stofan opnaði í jólamánuðinum á sjöundu og efstu hæð í norðurturni verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðar. Um er að ræða stað með óhefðbundinni, notalegri aðstöðu fyrir fólk sem vill geta unnið, nýtt fundarherbergi og átt þess kost eftir vinnudag að njóta samveru að kvöldi á sama stað með vinum og/eða vinnufélögum. Sveigjanlegur vinnustaður og vinna í […]

Guðrún Brá og Róbert Ísak eru íþróttafólk Hafnarfjarðar 2021

Val á íþróttakonu, íþróttakarli og íþróttaliði Hafnarfjarðar fór fram rafrænt á miðlum Hafnarfjarðarbæjar í dag. Afrekslið Hafnarfjarðar 2021 er meistaraflokkur kvenna í körfuknattleik hjá Knattspyrnufélaginu Haukum. Guðrún Brá Björgvinsdóttir kylfingur frá Golfklúbbnum Keili er íþróttakona Hafnarfjarðar og Róbert Ísak Jónsson sundmaður úr Íþróttafélaginu Firði er íþróttakarl Hafnarfjarðar.  300 hafnfirskir einstaklingar hafa unnið titla á árinu […]