Category: Fréttir

Víðavangshlaup Hafnarfjarðar 2021 – takk fyrir komuna!

Þúsund þakkir fyrir þátttökuna!  Víðavangshlaup Hafnarfjarðar fór fram í miðbænum sunnudaginn 3. október en með þessu frábæra hlaupi sló heilsubærinn Hafnarfjörður botninn í Íþróttaviku Evrópu 2021. Margir efnilegir hlauparar voru að stíga sín fyrstu skref í hlaupinu en keppendur voru um hundrað talsins og fjölmennast var í yngstu aldursflokkunum. Kynning á kúluvarpi og langstökki Frjálsíþróttadeild […]

Styrkir bæjarráðs – seinni úthlutun 2021

Bæjarráð veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum eða einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröð sveitarfélagsins. Úthlutun styrkja fer fram tvisvar á ári og nú er komið að seinni úthlutun ársins í ár. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2021. Umsækjendur […]

Gul veðurviðvörun í dag frá kl. 13:00

Gul veðurviðvörun er í gildi í dag þriðjudaginn 28. september frá kl. 13:00 – 23:59.Nánar á Veðurstofu Íslands  Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í eða úr skóla eða frístundastarfi. Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur […]

Hús tækifæranna í Hellisgerði

Í Hellisgerði hafa risið tvö gróðurhús beggja vegna Oddrúnarbæjar sem í dag hýsir Litlu Álfabúðina . Um er að ræða skemmtilega viðbót við lífið, umhverfið og reksturinn sem fyrir er í Hellisgerði til að auka sýnileika og mannlíf í garðinum. Gróðurhúsin eru opin á opnunartíma Litlu Álfabúðarinnar en utan opnunartíma er hægt að fá afnot […]

Átt þú rétt á viðbótarafslætti?

Nú í upphafi skólaárs er nauðsynlegt að endurnýja umsóknir um viðbótarafslátt af leikskólagjöldum og viðbótarniðurgreiðslur til dagforeldra og verða allar eldri umsóknir sem bárust fyrir 1. júlí felldar úr gildi frá 1. nóvember n.k. Til að öðlast viðbótarafslátt eða viðbótarniðurgreiðslu þarf umsókn að berast í gegnum MÍNAR SÍÐUR Viðbótarafsláttur af leikskólagjöldum og viðbótarniðurgreiðsla til dagforeldra   Bæjarstjórn […]

Snyrtileikinn heiðraður – Krýsuvíkurkirkja fær heiðursverðlaunin 2021

Fjöldi viðurkenninga fyrir snyrtileika var veittur við hátíðlega athöfn í Hafnarfirði í gær. Heiðursverðlaun hlaut Krýsuvíkurkirkja sem endursmíðuð var í upprunalegri mynd og komið fyrir á sínum stað í október 2020. Tvö fyrirtæki á hafnarsvæðinu, Hafrannsóknarstofnun og arkitektastofan Batteríið, fengu viðurkenningu fyrir snyrtileika auk þess sem Lóuás í Áslandinu var valin stjörnugata ársins. Eigendur níu […]

Samgöngur á kjörstað

Almenningssamgöngur eru ágætar á báða kjörstaði fyrir alþingiskosningarnar laugardaginn 25. september 2021.  Vert er að benda á að leiðir 1 og 19 eru góður kostur fyrir þá sem vilja nýta sér almenningssamgöngur Strætó. Báðar leiðir stoppa við Hraunbrún, sem er nálægt kjörstað í Víðistaðaskóla.  Leið 19 keyrir fram hjá Lækjarskóla og nálægasta stopp er Hlíðarberg/Staðarberg. […]

Íþróttavika Evrópu 2021 hófst í gær – tökum virkan þátt!

Hafnarfjörður tekur virkan þátt með opnum húsum og æfingum Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin dagana 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Vikan hefur það að markmiði að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða […]

Appelsínugul veðurviðvörun frá kl. 13:30 – 17:00 í dag

Skilaboð til foreldra og forráðamanna  Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi frá kl. 13:30 – 17:00 í dag þriðjudaginn 21. september 2021. Nánar á vef Veðurstofu Íslands Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum úr skóla eða frístundastarfi. Við appelsínugula veðurviðvörun er meiri þörf á að fylgja börnum úr skólanum. Rétt er að hafa […]

Umsóknir um lóð í Sléttuhlíð teknar fyrir í vikunni

Umsóknir um frístundahúsalóð í Sléttuhlíð sem auglýst var laus til úthlutunar í byrjun september 2021 verða teknar fyrir á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar fimmtudaginn 23. september.  Bæjarráð annast afgreiðslu umsókna um lóðir og gerir tillögu til bæjarstjórnar.  Almennar reglur um úthlutun lóða