Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
„Halló, öll. Til hamingju með daginn,“ sagði Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri þegar hún fagnaði árlegum Degi leikskólans með börnunum í Hraunvallaskóla. Á þessum degi er sérstöku ljósi varpað á það mikla og góða starf sem fram fer innan leikskóla Hafnarfjarðar. Leikskólar landsins eiga daginn í dag.
Fjör var í Hraunvallaskóla þegar börnin tóku á móti Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra sem fagnaði með þeim Degi leikskólans. Hraunvallaskóli var stofnaður árið 2008. Hann stendur að Drekavöllum 9 og þar starfa 40 með rétt yfir 100 börnum. Skólinn hefur þá sérstöðu að þar eru rekin bæði leik- og grunnskóli. Börnin geta því gengið í skólann frá 16 mánaða aldri til sextán ára. Sex leikskólaeiningar eru innan skólans og starfar hann eftir hugmyndafræði opna skólans. Byggingin er hönnuð með það í huga og eru gildi skólans vinátta, samvinna og ábyrgð. Guðbjörg Hjaltadóttir, leikskólastjóri, sem og starfsfólk leikskólans tóku á móti bæjarstjóranum, Jennýju Dagbjörtu Gunnarsdóttur, þróunarfulltrúa leikskóla og Árnýju Steindóru Steindórsdóttur, deildarstjóra leikskólamála, á þessum degi tileinkuðum leikskólunum. Hefð hefur skapast í leikskólum Hafnarfjarðar og um land allt að halda upp á daginn með fjölbreyttum hætti.
Á Degi leikskólans 6. febrúar 2024.
En af hverju 6. febrúar? Jú, þennan dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólanna fyrstu samtök sín. Dagurinn er haldinn hátíðlegur um land allt til að vekja athygli á leikskólastiginu, mikilvægi þess og því frábæra starfi sem fer fram í skólunum. Markmið með 6. febrúar er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum. Einkunnarorðin eru: Við bjóðum góðan dag – alla daga. Þess má geta að á síðasta ári – þennan dag – fékk Hafnarfjarðarbær Orðsporið en hefðbundið er að veita þessi verðlaun í tengslum við þennan ánægjulega dag.
Meira um Hraunvallaleikskóla:
Á vef Hafnarfjarðarbæjar má finna ítarlegar upplýsingar um starfsemi skólanna
Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir Hvítasunnuhelgina sem hér segir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann…
Við Hafnfirðingar getum sótt moltu frá morgundeginum á planinu við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.
Akstursþjónusta eldra fólks verður efld frá og með 15. maí. Ferðum fjölgar úr 8 í 16. Tvöfalt fleiri ferðir verða…
Tólf manna sendinefnd frá vinabæ Hafnarfjarðar Tartu í Eistlandi heimsótti bæinn heim í byrjun vikunnar. Hún kynnti sér starfsemina og…
Heilsubærinn Hafnarfjörður auglýsir eftir liðum sem vilja taka þátt í kappróðri á höfninni á Sjómannadaginn sunnudaginn 2. júní. Vinnustaðir, vinahópar,…
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var samþykktur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 8. maí. Helstu niðurstöður eru þær að afgangur af…
Dagana 9. – 12. maí 2024 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í…
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst á morgun og fer fram dagana 8. – 28. maí. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll…
Leikskóladagur barna í Hafnarfirði tekur umtalsverðum breytingum frá og með 1. september 2024 og er endurskipulagningin svar við breyttum forsendum…
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar…