Skráning í Vinnuskóla Hafnarfjarðar fyrir sumarið 2026

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Skráning í Vinnuskóla Hafnarfjarðar fyrir sumarið 2026 hefst á morgun þann 23. apríl í gegnum skráningarkerfi Vinnuskólans, Völu. Meginhlutverk Vinnuskólans er að veita nemendum úr efstu bekkjum grunnskóla uppbyggileg sumarstörf og fræðslu í öruggu starfsumhverfi.

Komdu í Vinnuskólann

Skráning í Vinnuskóla Hafnarfjarðar fyrir sumarið 2026 hefst á morgun þann 23. apríl í gegnum skráningarkerfi Vinnuskólans, Völu.

Meginhlutverk Vinnuskólans er að veita nemendum úr efstu bekkjum grunnskóla uppbyggileg sumarstörf og fræðslu í öruggu starfsumhverfi. Öllum nemendum 8., 9. og 10. bekkja býðst að koma til starfa í almennum garðyrkjuhópum á vegum bæjarins. Auk þess býðst nemendum 9. og 10. bekkjar að sækja um störf hjá samstarfsaðilum, til dæmis íþróttafélögum, skátum, leikskólum og frístundaheimilum.

Finna má lista yfir samstarfsaðila á heimsíðu Vinnuskólans. Listinn uppfærist reglulega eftir því sem samstarfsfyrirtækjum fjölgar.

Vinnutími fer eftir aldri

Daglegur vinnutími unglinga fer eftir aldri og getur verið breytilegur eftir því hvort unglingur starfi í almennum garðyrkjuhóp eða hjá samstarfsaðila – fyrirkomulag hjá almennum hópum er eftirfarandi:

  • Vinnutími hjá 14 ára unglingum eru 3,5 tímar á dag, mánudaga til fimmtudaga (14 tímar á
    viku). Aðra hverja viku er unnið fyrir hádegi (kl. 08:30-12:00) og hina eftir hádegi (kl. 12:30-
    16:00).
  • Vinnutími 15 ára unglinga eru 3,5 tímar á dag, mánudaga til fimmtudaga. Síðustu vikuna
    20.7-23.7 vinna unglingarnir lengri daga, til að ná að klára tímana sína. Aðra hverja viku er
    unnið fyrir hádegi (kl. 08:30-12:00) og hina eftir hádegi (kl. 12:30-16:00).
  • Vinnutími hjá 16 ára unglingum eru 7 tímar á dag frá mánudegi til fimmtudags. Fyrir hádegi er unnið frá kl 08:30-12:00 og eftir hádegi frá kl 12:30-16:00.
  • Daglegur vinnutími unglinga hjá samstarfsaðilum er ávallt ákveðinn af starfsstöðum í
    samræmi við Reglugerð um vinnu barna og unglinga.
    En hversu marga tíma mega unglingarnir starfa yfir sumarið?
  • 14 ára unglingar vinna 71 tíma.
  • 15 ára unglingar vinna 92 tíma.
  • 16 ára unglingar vinna 118 tíma.

Laun fara eftir aldri

16 ára unglingar (fædd 2010) eru með 1.560 krónur á tímann og orlof þar ofan á. Mjög brýnt er að 16 ára unglingar skili inn hvað þau ætli að nýta mikinn
persónuafslátt. Því þarf að skila á netfangið launafulltruar@hafnarfjordur.

15 ára unglingar (fædd 2011) verða með 1.248 krónur á tímann og orlof þar ofan á. 14 ára unglingar (fædd 2012) verða með 936 krónur á tímann og orlof þar ofan á. Orlof er borgað út með launum en ekki inn á sérstaka orlofsreikninga hjá öllum aldurshópum.

Allir nemendur sem skrá sig í vinnuskólann fá starf en ef skráningar berast seint minnka líkur á því að hægt sé að koma til móts við óskir nemenda um starfsstaði. Fyrir þá sem ætla sér að sækja um störf hjá samstarfsaðilum ber að hafa í huga að skrifstofa Vinnuskólans sér ekki um að tryggja umsækjendum þau störf heldur velja samstarfsaðilar sjálfir hverjir koma þar til starfa. Þannig að best er að klára að sækja um þau störf fyrir 11. maí þar sem að þann dag verða nafnalistar yfir umsækjendur sendir áfram á samstarfsaðila.

Öllum fyrirspurnum varðandi störf hjá samstarfsaðilum skal beina beint til þeirra þar sem að fyrirkomulag starfa getur verið mismunandi.

Fyrir þau ungmenni sem ekki treysta sér í almenna vinnuskólahópa án sértæks stuðnings þá býður Kletturinn upp á sértækan vinnuskólahóp fyrir þá sem þurfa einstaklingsmiðaða nálgun með stuðningi. Í starfinu er lögð mikil áhersla á jákvæða upplifun og virkni ungmenna en hægt er að nálgast frekari upplýsingar á netfangið kletturinn@hafnarfjordur.is

  • Allar nánari upplýsingar um störf Vinnuskóla Hafnarfjarðar má finna á vef skólans hér.

 

Ábendingagátt