Tómstundaleiðbeinandi – Aldan – Öldutúnsskóli
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 21.08.2026
Umsóknarfrestur til: 04.09.2026
Tengiliður: margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is
Öldutúnsskóli auglýsir eftir tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Ölduna
Langar þig að vinna með börnum og unglingum í skapandi og skemmtilegu umhverfi?
Við í Öldutúnsskóla leitum að drífandi, jákvæðum og kraftmiklum tómstundaleiðbeinanda til starfa í félagsmiðstöðinni Öldunni.
Í Öldutúnsskóla eru um 580 nemendur í 1.–10. bekk og leggjum við áherslu á virðingu, virkni og vellíðan í öllu skólastarfi.
Félagsmiðstöðin Aldan býður nemendum í 5.–10. bekk upp á fjölbreytt og metnaðarfullt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur. Starfið byggir á unglingalýðræði, virkri þátttöku og öflugu forvarnastarfi. Þar fá börn og unglingar tækifæri til að taka þátt í opnu félagsstarfi, skipulagðri dagskrá, hópastarfi og fjölbreyttum viðburðum sem mótaðir eru í samstarfi þeirra og starfsfólks.
Starfið hentar sérstaklega vel fyrir skólafólk eða einstaklinga sem leita að fjölbreyttu og gefandi aukastarfi með börnum og unglingum.
Helstu verkefni
- Taka þátt í að skipuleggja og þróa fjölbreytta dagskrá í samstarfi við stjórnendur, samstarfsfólk og ungmenni.
- Eiga í góðum og virkum samskiptum við börn og unglinga og hvetja þau til þátttöku.
- Stuðla að jákvæðu, öruggu og uppbyggilegu félagslegu umhverfi sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum.
- Styðja við frumkvæði, félagsfærni og vellíðan barna og unglinga.
- Sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu tómstundaleiðbeinanda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsþjálfun, námskeið og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum er kostur.
- Frumkvæði, jákvætt viðmót og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Góð skipulagshæfni og stundvísi.
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi með börnum og unglingum.
- Almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta. Gerð er krafa um hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
- Hreint sakavottorð er skilyrði.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita:
Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri
Sími: 664 5894
Netfang: margret@oldutunsskoli.is
Kristján Hans Óskarsson, deildarstjóri
Sími: 664 5712
Netfang: kristjan.oskarsson@oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til og með 4. september
Ferilskrá skal fylgja umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.
Hafnarfjarðarbær vinnur markvisst að jafnrétti og fjölbreytileika á vinnustöðum sínum og hvetur fólk af öllum kynjum og með fjölbreyttan bakgrunn til að sækja um starfið.