Starfsmaður óskast í þjónustu á heimilum fatlaðs fólks
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 21.08.2026
Umsóknarfrestur til: 30.08.2026
Tengiliður: Rakelr@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan og jákvæðan starfsmann í fjölbreytt og lærdómsríkt starf á heimilum fatlaðs fólks sem glímir við andlegar áskoranir. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi og skemmtilega vaktavinnu þar sem verkefnin eru fjölbreytt og áhersla lögð á góð samskipti, virðingu, sjálfstæði og þátttöku íbúa í daglegu lífi.
Vinnutími getur hentað vel samhliða námi. Vaktir eru á morgnana, kvöldin og um helgar. Morgunvaktir virka daga eru frá kl. 08:00–12:00.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf frá og með 1. september 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Styðja og hvetja íbúa til sjálfstæðis og þátttöku í eigin lífi
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
- Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum góð fyrirmynd og sýna frumkvæði
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Almenn heimilisstörf
- Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Hæfniskröfur
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg
- Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópsku tungumálaramma
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, ábyrgð og samviskusemi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Líkamleg geta til að sinna verkefnum starfsins
- Ökuréttindi eru skilyrði
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri. Skilyrði fyrir ráðningu er hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst 2026.
Umsókn skal fylgja ferilskrá. Frekari upplýsingar um starfið veitir Rakel Róbertsdóttir, forstöðukona, í síma 534-3891 eða í netfanginu rakelr@hafnarfjordur.is.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins