Hressandi helgi framundan í firðinum fagra

Fréttir

Frístundamessa fyrir börnin, samtal við listamenn og sýningarstjóra og Vegan hátíð á Thorsplani verða í Hafnarfirði um helgina. Fjölskyldur, listunnendur og sælkerar verða því í essinu sínu – hvað með þig?

Hressandi helgi í Hafnarfirði

Fyrsta Frístundamessa Hafnarfjarðar verður haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu á morgun, laugardaginn 29. ágúst kl. 10–14. Íþrótta- og tómstundafélög bæjarins koma þar saman og kynna fjölbreytta starfsemi sína fyrir börnum og foreldrum.

Já, þetta er frábær samvinna félaganna sem gefur börnunum tækifæri til að kynna sér ólíkar íþróttir og tómstundir. Þá fá að prófa ýmsar spennandi greinar til að finna þá einu réttu.

Brúarsmiðirnir verða á staðnum og aðstoða fólk með mismunandi tungumála- og menningarbakgrunn.

Glænýjar sýningar í Hafnarborg

Boðið verður upp á listamanna- og sýningarstjóraspjall í Hafnarborg á morgun, laugardaginn 29. ágúst kl. 14–15 um haustsýninguna Spássíu.

Listamennirnir Gabi Schillig og Hildur Elísa Jónsdóttir og sýningarstjórarnir Katrín Björg Gunnarsdóttir og Úlfur Bragi Einarsson leiða gesti um sýninguna og ræða hugmyndirnar að baki henni.

Sýningin beinir sjónum að jaðri sýningarrýmisins og þeim krókum, kimum og flötum sem gjarnan fá minni athygli. Spjallið fer fram á íslensku og ensku. Og það besta, aðgangur er ókeypis.

Nei eða já – af eða á!

Og ætlar þú að kjósa? Kjörfundur í Hafnarfirði vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst 2026 hefst kl. 09:00 og lýkur kl. 22:00. Gott er að vita að kjörstaðir í Hafnarfirði eru Lækjarskóli og Ásvellir, íþróttamiðstöð. Hvar er kjördeildin þín? Sjá hér

Vegan hátíð í þriðja sinn á Thorsplani

Vegan hátíðin verður haldin á Thorsplani með pompi og prakt sunnudaginn 30. ágúst kl. 12–16. Hátíðin hefur fest sig í sessi og verður nú í þriðja sinn á Thorsplani.

Boðið verður upp á fjölbreytt úrval matar og annarra vegan vara. Þar má meðal annars finna ís, kólumbískan mat, transylvanískar kökur, ungverskar flatbökur, víetnamska rétti, bakkelsi og kaffidrykki. Yngri gestir geta notið hoppukastala, skynjunarupplifunar og andlitsmálningar.

Ragga Gröndal kemur fram og síðar skapa Gunnar Hilmarsson og Jóhann Guðmundsson notalega stemningu með djössuðum tónum. Gestir eru hvattir til að mæta tímanlega og tryggja sér bestu kræsingarnar.

Stuð á Ægi 220

Þetta er ekki allt. Það verður Gósslokahátíð á Ægi 220 í kvöld fyrir ykkur sem hafið gaman að tónlist og mannamótum. Tríóið GÓSS slúttar sumrinu með tónleikum á Ægi 220 í kvöld kl. 20. Tríóið skipa Sigríður Thorlacius og bræðurnir Sigurður og Guðmundur Óskar Guðmundssynir.

Fumsamin lög og tökulög eru á efnisskránni, íslensk ættjarðarlög og erlend dægurlög, öllu komið fyrir í þrírödduðum sveitabúningi. Miðaverð er frá 6.000 krónum.

Og hvernig lítur dagskráin þá út?

Njótið helgarinnar í Hafnarfirði!

 

Ábendingagátt