Fólk með fötlun

Fólk með fötlun á rétt á þjónustu og stuðningi sem það þarf til að lifa sjálfstæðu og virku lífi. Í Hafnarfirði er þjónandi leiðsögn höfð að leiðarljósi. Hlýja og hvatning er sýnd í öllum aðstæðum.

Tómstundir barna og ungmenna

Hafnarfjörður býður upp á fjölbreytt frístundastarf fyrir börn og ungmenni með fötlun.

Aldan – Hópastarf fyrir börn með fötlun

Hópastarf fyrir börn í 5. 7. bekk með fötlun.

  • Opnunartími
    Annan hvorn fimmtudag 17:30-19:30

Kletturinn

Frístund fyrir börn í 4.–10. bekk með fötlun.

  • Opnunartími
    Virka daga Skólalokun–16:30

Kvöldstarfið

Tómstundastarf fyrir 16–25 ára ungmenni með fötlun.

  • Opnunartími
    Mánudaga 18–22
  • Miðvikudaga 18–22

Mosinn – Hópastarf fyrir félagslega einangruð ungmenni

Hópastarf fyrir börn í 8. 10. bekk með fötlun.

  • Opnunartími
    Alla fimmtudaga í 6 vikur 19:45 - 21:45

Vinaskjól

Frístund fyrir 16–20 ára ungmenni með fötlun.

  • Opnunartími
    Virka daga 13–16:30