Karlkyns skóla- og frístundaliði – Skarðshlíðarskóli
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 23.08.2026
Umsóknarfrestur til: 06.09.2026
Tengiliður: ingibjorg@skardhlidarskoli.is
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundalið til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í 60% starfshlutfall. Eðli starfsins vegna þarf viðkomandi að vera karlkyns, vegna fylgdar í sund og íþróttakennslu.
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
- Fylgd í sund og íþróttir
- Tekur á móti nemendum á morgnanna
- Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
- Sinnir frímínútnagæslu, fylgd og gæslu í daglegu skólastarfi
- Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og salernum snyrtilegum yfir daginn
- Starfar með nemendum með sértæka vanda
- Önnur verkefni skv, starfslýsingu
Menntunar- og hæfinskröfur
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsramma (coe.int)
- Almenn tölvukunnátta
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871, ingibjorg@skardshlidarskoli.is og Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861, margret@skardshlidarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2026.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.