Skrifstofustjóri – Lækjarskóli 80-100% starf
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 24.08.2026
Umsóknarfrestur til: 07.09.2026
Tengiliður: dogg@laekjarskoli.is
Lækjarskóli auglýsir eftir skrifstofustjóra í 80-100 % starf.
Skrifstofustjóri vinnur náið með stjórnendum að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi og metnaðarfullu starfsumhverfi. Skrifstofustjóri starfar sem aðstoðarmaður skólastjóra um almennan rekstur skólans og starfar náið með stjórnendateymi skólans.
Lækjarskóli er almennur, heildstæður, grunnskóli. Lækjarskóli er staðsettur í fallegu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Í Lækjarskóla fögnum við fjölbreytileikanum og áhersla er lögð á vellíðan nemenda og starfsmanna og er leiðarljós skólans ábyrgð, virðing og vellíðan.
Helstu verkefni skrifstofustjóra:
- Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu og ber ábyrgð á samskiptum skóla við þá sem eiga erindi við hana
- Umsýsla ráðningasamninga og samskipti við launadeild
- Umsjón með vinnustund og starfsmannahaldi
- Umsjón með skráningu nemenda, forfallaskráningu og skipulagi forfalla
- Sér um skipulag og stjórnun skjalavörslu
- Sér um pantanir á ýmsum gögnum sem nauðsynleg eru rekstri skólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar – og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (B.A./B.S./B.Ed gráða)
- Áhugi á mannauðstengdum verkefnum
- Mjög góð þekking og reynsla af skrifstofustörfum
- Mjög góð tölvukunnátta
- Þekking á Kjarna og Vinnustund kostur
- Góð íslenskukunnátta er áskilin. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmuðum Evrópska tungumálarammans, Sjálsmatsrammi í ræðu og riti
- Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
- Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi
- Lipurð í samskiptum og samstarfshæfni
- Stundvísi og samviskusemi
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2026
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dögg Gunnarsdóttir, skólastjóri, í síma 664-5877 eða í gegnum netfangið dogg@laekjarskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.