Starfsmaður á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk – Drekavellir
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 25.08.2026
Umsóknarfrestur til: 03.09.2026
Tengiliður: Berglind Brynjarsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og sjálfstætt líf.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að óska eftir starfsmanni í 80 % starfshlutfall. Viðkomandi þarf að geta hafið störf um miðjan september.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
- Almenn heimilisstörf
- Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópska tungumálaramma
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Ágætis tölvukunnátta
- Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
- Ökuréttindi skilyrði
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá og afrit af ökuskírteini um gild ökuréttindi.
Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 664-5726, netfang: berglindbr@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 3.september 2026
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.