Dagskráin í bænum okkar 17. júní

Fréttir

Skrúðganga, Víkingahátíð, þjóðbúningasamkoma og fjölmenningarleg matarhátíð verður meðal dagskrárliða í Hafnarfirði á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Svo verður tónlistarveisla frá kvöldmatartíma til 21.30. Vertu endilega með, því það verður svo gaman.

Já, hér verður gaman! Njótum saman

Skrúðganga, Víkingahátíð, þjóðbúningasamkoma og fjölmenningarleg matarhátíð verður meðal dagskrárliða í Hafnarfirði á þjóðhátíðardegi Íslendinga.

Dagskráin teygir sig frá morgni til kvölds. Hún hefst með því að fánar verða dregnir að húni kl. 8 að morgni á Hamrinum og endar með því að Jón Jónsson stígur á svið í lok tónlistarveislu við Ráðhústorg frá upp úr kl. 21.15. Tónlistarveislan hefst kl. 19. Þar koma Elín Hall, Elvar, Kristmundur Axel og gusgusar fram á undan Jóni.

Hjarta Hafnarfjarðar tekur kipp á þjóðhátíðardaginn. Hægt er að hitta Íþróttaálfinn og Sollu í firðinum fagra eins og svo mörg önnur því miðbærinn verður fullur af lífi, fjöri, list, tónlist.

Skrúðganga er frá Flensborgarskóla kl. 13 að Thorsplani og Ráðhústorgi þar sem hátíðin nær hámarki. Þar bíða skemmtiatriði, tónleikar, dans, diskó og dýrindis veitingar af ýmsum gerðum.

Boði er upp á sjósund og gufu, hægt er að kíkja á víkingana á Víkingahátíðinni, prófa hjólabretti eða jafnvel badminton. Einnig má sjá þjóðbúningasýningu Annríkis og taka þátt í brekkusöng barnanna kl. 17 í Hellisgerði.

Börnin geta notið sín í leiksmiðju á vegum Plánetu, fengið andlitsmálun á Hörðuvöllum eða á Thorsplani og svo verða hoppukastalar víða um bæinn. Listunnendur geta skoðað nýjar sýningar bæði í Hafnarborg og á Byggðasafninu. Frítt inn.

Við hvetjum bæjarbúa og gesti til að leggja bílum nálægt miðbænum og ganga inn á svæðið, njóta dagsins saman – og skilja hundana eftir heima 🐾.

Dagskrá frá morgni til kvölds

  • Kl. 14:00 – Tónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar við Byggðasafnið
  • Kl. 15:00 – Þjóðbúningasýning Annríkis og myndataka við Hafnarborg
  • KL. 17:00 – Brekkusöngur barnanna í Hellisgerði 

🎶 Dagskráin heldur áfram, en frá kl.19 verður tónlistarveisla við Ráðhústorg þar sem landsþekkt tónlistarfólk stígur á svið!

  • Lúðrasveit verkalýðsins
  • Elín Hall
  • Elvar
  • Kristmundur Axel
  • gugusar
  • Jón Jónsson

Finna má kort og lokanir hér

Verið öll hjartanlega velkomin – við sjáumst í Hafnarfirði 17. júní! 

 

Ábendingagátt